Leiðbeiningar
Taka út á bankareikning eða í veski
Taktu USDC út á íslenskan bankareikning á þínu nafni, eða rafmyntir í veski. Rafmyntaúttektir staðfestir þú með hlekk í tölvupósti.
Áður en þú byrjar
- Lykill með
withdrawals:create. Bættu viðtransactions:readef sami lykill á að telja upp aðrar færslur;withdrawals:createeinn og sér les úttektir og vistaða bankareikninga. - Opið fyrir úttektir í gegnum API-ið:
withdrawals_enabledí GET/v1/status. - Næg laus innistæða í myntinni. Upphæðin sem þú biður um er með gjaldinu.
Bankaúttektir
Bankaúttektir eru alltaf af USDC innistæðunni þinni, á íslenskan bankareikning á nafni eiganda aðgangsins: við greiðum á kennitöluna þína, svo bankinn hafnar reikningi á annarra nafni. Ekkert annað þarf að velja: venjulegur reikningur fær greitt í krónum á gengi Arion, og gjaldeyrisreikningur hjá Arion (03xx-38-…) í Bandaríkjadölum.
Vistuðu reikningarnir þínir
GET/v1/bank-accounts telur upp reikningana sem þú hefur tekið út á áður, þann sem síðast var
notaður fyrst:
# Signed by sign-headers.sh: see Authentication
curl https://public-api.myntkaup.is/v1/bank-accounts \
$(./sign-headers.sh GET /v1/bank-accounts | sed 's/^/-H /')import { Myntkaup } from "@myntkaup/api";
const client = new Myntkaup(); // reads the key from the environment
const { data: accounts } = await client.bankAccounts.list();
console.log(accounts.map((account) => account.account_number));from myntkaup import Myntkaup
client = Myntkaup() # reads the key from the environment
accounts = client.bank_accounts.list()["data"]
print([account["account_number"] for account in accounts]){
"data": [
{
"account_number": "0133-26-012345",
"payout_currency": "ISK",
"added_at": "2026-03-02T14:05:00Z",
"last_used_at": "2026-10-28T09:12:00Z"
}
]
}Taktu út
POST/v1/withdrawals/bank tekur upphæðina í USDC, með mest 2 aukastöfum, og bankareikninginn:
vistaðan, eða nýjan sem 0000-00-000000 eða 12 tölustafi. Idempotency-Key hausinn er skylda.
# Signed by sign-headers.sh: see Authentication
body='{"amount":"250.00","bank_account":"0133-26-012345"}'
idempotency_key=$(uuidgen) # reuse it to retry safely
curl https://public-api.myntkaup.is/v1/withdrawals/bank \
-H "Content-Type: application/json" \
-H "Idempotency-Key: $idempotency_key" \
$(./sign-headers.sh POST /v1/withdrawals/bank "$body" | sed 's/^/-H /') \
--data "$body"import { Myntkaup } from "@myntkaup/api";
const client = new Myntkaup(); // reads the key from the environment
// Sends a random Idempotency-Key unless you pass idempotencyKey.
const withdrawal = await client.withdrawals.createBank({
amount: "250.00",
bankAccount: "0133-26-012345",
});
console.log(withdrawal.id, withdrawal.status);from myntkaup import Myntkaup
client = Myntkaup() # reads the key from the environment
# Sends a random Idempotency-Key unless you pass idempotency_key.
withdrawal = client.withdrawals.create_bank(amount="250.00", bank_account="0133-26-012345")
print(withdrawal["id"], withdrawal["status"]){
"id": "wd_01JB8X2Q4M7Z3V9K5T1N6R0P2W",
"type": "bank",
"status": "pending",
"asset": "USDC",
"network": null,
"amount": "250",
"fee": "7",
"address": null,
"memo": null,
"bank_account": "0133-26-012345",
"tx_id": null,
"source": "public_api",
"created_at": "2026-11-03T10:15:10Z",
"confirm_by": null,
"completed_at": null
}- Upphæðin er frátekin strax, og úttektin er
pendingþar til við greiðum hana út, á virkum degi. Þá verður húncompleted. - Lágmarkið er 15 USDC og gjaldið er dregið af upphæðinni (
feeí svarinu). Undir lágmarkinu, eða ekki hærra en gjaldið:422 amount_below_minimum. - Gjaldeyrisreikningur í öðrum banka en Arion:
400 invalid_request. - Eigandi aðgangsins fær tölvupóst fyrir hverja bankaúttekt sem gerð er í gegnum API-ið.
Rafmyntaúttektir
Rafmyntaúttekt í gegnum API-ið er beiðni. Við sendum hlekk á netfang aðgangsins, og ekkert er sent, eða einu sinni frátekið, fyrr en einhver opnar hlekkinn og staðfestir, innan 30 mínútna. Tölvupósturinn nefnir API lykilinn sem beiðnin kom frá.
POST/v1/withdrawals/crypto tekur:
assetogamount, með gjaldinu;address, ogmemofyrir XRP (destination tag) og HBAR;network, aðeins fyrir USDC:ethereum(sjálfgefið, ERC-20) eðasolana;travel_rule: hver á addressuna, eins og appið spyr. Lögin krefjast þess við hverja rafmyntaúttekt.
travel_rule | Hvenær |
|---|---|
{ "address_owner": "self", "wallet_type": "self_hosted" } | þitt eigið veski, sem þú hefur lyklana að |
{ "address_owner": "self", "wallet_type": "hosted", "vasp": "kraken" } | þinn eigin aðgangur hjá kauphöll |
{ "address_owner": "other", "wallet_type": "self_hosted", "beneficiary": { "type": "individual", "full_name": "Anna Jónsdóttir" } } | veski einhvers annars |
{ "address_owner": "other", "wallet_type": "hosted", "vasp": "other", "vasp_name": "Example Exchange", "beneficiary": { "type": "company", "company_name": "Dæmi ehf.", "registration_number": "5501012340" } } | aðgangur fyrirtækis hjá kauphöll sem er ekki á listanum |
vasp er eitt af binance, coinbase, kraken, crypto_com, bybit, okx, bitget, kucoin, gate_io, htx, mexc, bitfinex, gemini, bitstamp, upbit, bithumb, bitpanda, etoro, revolut eða other. Á innborgunaraddressu annars viðskiptavinar Myntkaupa fyllum við Travel Rule upplýsingarnar út úr aðgangi hans.
# Signed by sign-headers.sh: see Authentication
body='{"asset":"BTC","amount":"0.01","address":"bc1qxy2kgdygjrsqtzq2n0yrf2493p83kkfjhx0wlh","travel_rule":{"address_owner":"self","wallet_type":"self_hosted"}}'
idempotency_key=$(uuidgen) # reuse it to retry safely
curl https://public-api.myntkaup.is/v1/withdrawals/crypto \
-H "Content-Type: application/json" \
-H "Idempotency-Key: $idempotency_key" \
$(./sign-headers.sh POST /v1/withdrawals/crypto "$body" | sed 's/^/-H /') \
--data "$body"import { Myntkaup } from "@myntkaup/api";
const client = new Myntkaup(); // reads the key from the environment
// Nothing is sent until the link in the confirmation email is opened.
const withdrawal = await client.withdrawals.createCrypto({
asset: "BTC",
amount: "0.01",
address: "bc1qxy2kgdygjrsqtzq2n0yrf2493p83kkfjhx0wlh",
travelRule: { addressOwner: "self", walletType: "self_hosted" },
});
console.log(withdrawal.status, withdrawal.confirm_by);from myntkaup import Myntkaup
client = Myntkaup() # reads the key from the environment
# Nothing is sent until the link in the confirmation email is opened.
withdrawal = client.withdrawals.create_crypto(
asset="BTC",
amount="0.01",
address="bc1qxy2kgdygjrsqtzq2n0yrf2493p83kkfjhx0wlh",
travel_rule={"address_owner": "self", "wallet_type": "self_hosted"},
)
print(withdrawal["status"], withdrawal["confirm_by"]){
"id": "wd_01JB8X2Q4M7Z3V9K5T1N6R0P2W",
"type": "crypto",
"status": "awaiting_confirmation",
"asset": "BTC",
"network": "bitcoin",
"amount": "0.01",
"fee": "0.0005",
"address": "bc1qxy2kgdygjrsqtzq2n0yrf2493p83kkfjhx0wlh",
"memo": null,
"bank_account": null,
"tx_id": null,
"source": "public_api",
"created_at": "2026-11-03T10:15:10Z",
"confirm_by": "2026-11-03T10:45:10Z",
"completed_at": null
}Svarið er 202 með status awaiting_confirmation og confirm_by, þegar hlekkurinn hættir að virka. Síðan:
- Opnaðu tölvupóstinn og staðfestu. Upphæðin er frátekin og úttektin er
pendingmeðan við förum yfir hana og sendum. - Þegar hún hefur verið send er hún
completed, með færsluna á keðjunni ítx_id. - Hlekkur sem ekki er notaður í tæka tíð skilur úttektina eftir
expired, og ekkert var frátekið. Biddu aftur ef þú vilt hana enn.
Höfnun áður en nokkuð er vistað:
422 asset_not_withdrawable: myntina, eða þetta net, er ekki hægt að taka út í gegnum API-ið;422 amount_below_minimum: undir lágmarki myntarinnar, eða ekki hærra en gjaldið;422 insufficient_funds: ekki nóg laust;400 invalid_request: addressa sem passar ekki við myntina, memo vantar,travel_ruleer ófullgert, eða þín eigin innborgunaraddressa hjá Myntkaup;403 account_restricted: rafmyntaúttektir eru frystar á aðganginum, eða heimilisfangið vantar í prófílinn þinn (kláraðu hann í vefappinu);403 forbidden: lokað er fyrir úttektir í gegnum API-ið.
Fylgstu með
GET/v1/withdrawals telur upp banka- og rafmyntaúttektir úr öllum leiðum, nýjustu fyrst, síaðar
eftir type, status, asset, from og to:
# Signed by sign-headers.sh: see Authentication
curl "https://public-api.myntkaup.is/v1/withdrawals?type=bank&limit=10" \
$(./sign-headers.sh GET "/v1/withdrawals?type=bank&limit=10" | sed 's/^/-H /')import { Myntkaup } from "@myntkaup/api";
const client = new Myntkaup(); // reads the key from the environment
const page = await client.withdrawals.list({ type: "bank", limit: 10 });
console.log(page.data.map((withdrawal) => [withdrawal.id, withdrawal.status]));from myntkaup import Myntkaup
client = Myntkaup() # reads the key from the environment
page = client.withdrawals.list(type="bank", limit=10)
print([(withdrawal["id"], withdrawal["status"]) for withdrawal in page["data"]])GET/v1/withdrawals/{id} skilar einni.
Öryggisgátlisti
- Lykill sem er aðeins notaður fyrir úttektir, með
withdrawals:createog, eins og við mælum með, þröngum lista yfir leyfðar IP tölur. - Einn
Idempotency-Keyá hverja úttekt, vistaður áður en beiðnin er send og notaður aftur við endurtekningar. - Rafmyntaaddressur yfirfarnar áður en þær eru sendar: við getum ekki snúið við úttekt á ranga addressu.
- Hver staðfestingarpóstur lesinn áður en þú staðfestir: hann sýnir upphæðina, addressuna og lykilinn.
-
request_idhverrar úttektar er skráð.