Grunnatriði
Fyrstu skref
Búðu til API lykil í vefappinu, settu upp SDK og sendu fyrstu undirrituðu beiðnina. Það tekur um tíu mínútur.
Áður en þú byrjar
- Staðfestur aðgangur að Myntkaup, fyrir einstakling eða fyrirtæki. Verið er að opna API-ið fyrir aðganga skref fyrir skref: þegar það er opið fyrir þinn aðgang birtist API flipi í Stillingum í vefappinu.
- Fyrir SDK-in: Node.js 18 eða nýrra, eða Python 3.10 eða nýrra. Fyrir curl: skel með OpenSSL 3.
- Netþjónn eða tölva sem þú stjórnar. Einkalykill á aldrei heima í vafra eða snjallsímaappi.
Búðu til API lykil
Opnaðu Stillingar → API
Skráðu þig inn í vefappið, opnaðu Stillingar, veldu API flipann og smelltu á Búa til lykil.
Veldu heiti, heimildir, IP tölur og gildistíma
- Heiti: mest 60 stafir, svo þú þekkir lykilinn aftur.
- Heimildir (nánar): Lesa reikning og Lesa færslur eru sjálfgefið valdar. Viðskipti og Búa til gjafabréf eru það ekki; veldu þær aðeins fyrir forrit sem þarf á þeim að halda. Heimildum er ekki hægt að breyta síðar.
- Leyfðar IP tölur: valfrjálst, mest 10 opinberar IPv4 eða IPv6 tölur eða CIDR bil (að minnsta kosti
/16fyrir IPv4 og/32fyrir IPv6). Mælt með fyrir lykla sem eiga viðskipti eða búa til gjafabréf. - Gildistími: 30 dagar, 90 dagar, 1 ár eða ótímabundið. Sjálfgefið er 90 dagar. Ótímabundinn lykill virkar þar til þú afturkallar hann.
Staðfestu með rafrænum skilríkjum
Staðfestu með Auðkennisappinu eða skilríkjum í síma. Þetta staðfestir aðeins að þetta sért þú; þú skráist ekki inn upp á nýtt. Fyrir fyrirtæki staðfestir sá sem býr lykilinn til með eigin rafrænum skilríkjum, og lykillinn tilheyrir fyrirtækinu.
Geymdu einkalykilinn
Lyklaparið verður til í vafranum þínum og aðeins dreifilykillinn er sendur til Myntkaupa. Þú sérð tvö gildi, einu sinni: auðkenni lykils (
mk_live_…) og einkalykilinn (mk_sk_…). Sæktu.envskrána, eða afritaðu bæði gildin í lykilorðageymslu.
.env skráin lítur svona út:
# Myntkaup API key. Keep this file secret and never commit it.
MYNTKAUP_API_KEY_ID=mk_live_4f9c2a7d1e0b8c6a5d3f
MYNTKAUP_API_PRIVATE_KEY=mk_sk_…Hver aðgangur getur haft mest 5 virka lykla. Eigandi aðgangsins fær tölvupóst í hvert sinn sem lykill er búinn til, afturkallaður eða stöðvaður, og 7 dögum áður en lykill rennur út.
Settu upp SDK
SDK-in undirrita hverja beiðni, reyna aftur á öruggan hátt og breyta villum í undantekningar sem auðvelt er að grípa.
npm install @myntkaup/apipip install myntkaupSendu fyrstu beiðnina
GET /v1/me virkar með hvaða gildum lykli sem er. Það skilar aðganginum þínum og upplýsingum um lykilinn sjálfan, og er því gott fyrsta kall og góð leið til að kanna hvort allt virki.
# Signed by sign-headers.sh: see Authentication
curl https://public-api.myntkaup.is/v1/me \
$(./sign-headers.sh GET /v1/me | sed 's/^/-H /')import { Myntkaup } from "@myntkaup/api";
const client = new Myntkaup(); // reads the key from the environment
const me = await client.me();
console.log(me.account.name, me.key.scopes);from myntkaup import Myntkaup
client = Myntkaup() # reads the key from the environment
me = client.me()
print(me["account"]["name"], me["key"]["scopes"]){
"account": {
"type": "person",
"name": "Jón Jónsson",
"tier": "tier-1"
},
"key": {
"id": "mk_live_4f9c2a7d1e0b8c6a5d3f",
"name": "DCA bot",
"scopes": [
"account:read",
"transactions:read"
],
"ip_allowlist": [
"203.0.113.10"
],
"created_at": "2026-11-01T09:30:00Z",
"expires_at": "2027-01-30T09:30:00Z"
}
}Án SDK undirritarðu beiðnina með undirritunarfallinu og sendir hana með fetch. Node 20.6 eða nýrra hleður .env skránni fyrir þig með node --env-file=.env me.mjs:
import { signHeaders } from "./sign-headers.mjs";
const headers = signHeaders({
keyId: process.env.MYNTKAUP_API_KEY_ID,
privateKey: process.env.MYNTKAUP_API_PRIVATE_KEY,
method: "GET",
pathAndQuery: "/v1/me",
});
const response = await fetch("https://public-api.myntkaup.is/v1/me", { headers });
console.log(response.status, await response.json());Ef þú færð 401 timestamp_out_of_range munar meira en 30 sekúndum á klukkunni þinni og netþjónsins. GET /v1/status þarf ekki undirskrift og skilar klukku netþjónsins í server_time.
Hvað næst
Hvernig undirritun beiðna virkar, með prófunargögnum til að sannreyna eigin kóða.
Verðtilboð, viðskipti, viðskipti í bið og öruggar endurtekningar.
Lestu innistæður, viðskipti og allar færslur.
Allir endapunktar, færibreytur þeirra, svör og villur.