Hugtök
Upphæðir, tími og útgáfur
Reglurnar sem allir endapunktar fylgja: JSON meginmál, tugatölur á strengjaformi, UTC tími, auðkenni með forskeyti og stöðug v1.
Beiðnir
- Grunnslóðin er
https://public-api.myntkaup.is, og allar slóðir byrja á/v1. - Meginmál beiðna er JSON, sent með
Content-Type: application/json, og mest 8 KB. - Óþekktum reitum í meginmáli og óþekktum færibreytum í fyrirspurn er hafnað með
400 invalid_request. Skilaboðin nefna reitinn. - Hvert svar ber
MK-Request-Idhaus:req_og á eftir 26 stafir. Skráðu hann í annála.
Umhverfi
| Umhverfi | Grunnslóð | Lyklar |
|---|---|---|
| Raunumhverfi | https://public-api.myntkaup.is | mk_live_… |
| Prófunarumhverfi | https://public-api.staging.myntkaup.is | mk_test_… |
Prófunarumhverfið er í bili aðeins fyrir prófanir Myntkaupa sjálfra. Opið prófunarumhverfi fyrir forritara er á dagskrá.
Upphæðir
- Upphæðir eru tugatölur á strengjaformi:
"0.00104210","100.00","-100.00". Þær eru aldrei JSON tölur, sem myndu tapa nákvæmni. - Lestu þær með tugatölutegund, eins og
decimal.Decimalí Python eða tugatölusafni í JavaScript, eða haltu þeim sem strengjum. Ekki breyta þeim í fleytitölur til að reikna með þeim. - Upphæðir sem þú sendir eru jákvæðar, með mest 20 tölustöfum fyrir framan punktinn og 18 fyrir aftan. Upphæðir viðskipta eru námundaðar að
base_incrementrafmyntarinnar (sjá GET/v1/assets). - Viðskipti eru gerð upp í USDC (
quote_currency). Virði í ISK (value_isk,total_value_isk,isk_estimate) er aðeins leiðbeinandi.
Rafmyntir
Tákn rafmynta eru í hástöfum: "BTC", "ETH", "USDC". GET/v1/assets telur upp þær sem hægt er að eiga viðskipti með, ásamt stærðum og nákvæmni. Rafmynt með stöðuna delisted má enn selja.
Tími
- Tími í svörum er á ISO 8601 sniði í UTC, með
Z:"2026-11-03T10:15:10Z". - Síurnar
fromogtotaka líka við tímabelti:2026-11-03T00:00:00+00:00. MK-Timestamper annað: millisekúndur frá upphafi Unix tímatals.- „Dagur“ í mörkum er UTC dagur.
Auðkenni
Auðkenni eru ógegnsæir strengir með forskeyti sem segir hvað þau eru:
| Forskeyti | Hlutur |
|---|---|
qt_ | Verðtilboð |
tr_ | Viðskipti |
tx_ | Færsla (transaction) |
gc_ | Gjafabréf |
req_ | Auðkenni beiðnar |
mk_live_, mk_test_ | API lykill |
Geymdu þau sem strengi, allt að 70 stafi. Ekki þátta það sem kemur á eftir forskeytinu.
Útgáfur
Útgáfan er í slóðinni: /v1. Innan v1 er aðeins bætt við:
- nýjum endapunktum;
- nýjum valfrjálsum reitum og færibreytum í beiðnum;
- nýjum reitum í svörum.
Því skaltu hunsa reiti í svörum sem þú þekkir ekki, frekar en að hafna þeim. Ef einhverju yrði breytt eða það fjarlægt fylgdu því Deprecation og Sunset hausar á þeim endapunktum sem í hlut eiga, og ný útgáfa. Breytingaskráin telur upp allar breytingar.