SDK og CLI
Skipanalína (CLI)
@myntkaup/cli: skoðaðu innistæður og verð, eigðu viðskipti innan verðmarka sem þú staðfestir, og búðu til gjafabréf og úttektir úr skipanalínunni eða skriftu.
Uppsetning
npm install -g @myntkaup/cli
myntkaup --versionÞað þarf Node.js 22.12 eða nýrra. Skipunin heitir myntkaup. Einnig má keyra npx @myntkaup/cli án þess að setja pakkann upp.
Innskráning
Einfaldast er að gera það í vafranum:
myntkaup auth login --webSkipanalínan opnar Stillingar → API og biður um kóða. Þar velur þú Tengja skipanalínuna, hvað lykillinn má gera, staðfestir með rafrænum skilríkjum og afritar einnota kóðann í skipanalínuna. Skipanalínan býr lyklaparið til á tölvunni þinni, svo einkalykillinn er aldrei sýndur né sendur neitt. Myntkaup biður aldrei neinn um þennan kóða: límdu hann aðeins inn í skipun sem þú keyrðir sjálf eða sjálfur.
Eða búðu sjálf eða sjálfur til lykil, eins og í Fyrstu skrefum, aðeins með þeim heimildum sem þú þarft, og gefðu skipanalínunni hann:
# The .env file Settings → API offered:
myntkaup auth login --env-file ~/Downloads/myntkaup-mk_live_….env
# Or type the key id and private key (the private key isn't shown):
myntkaup auth login --with-key- Lykillinn er prófaður fyrst. Skipanalínan kallar á GET
/v1/memeð honum og vistar ekkert ef það mistekst. - Einkalykillinn verður eftir á tölvunni þinni. Hann fer í lyklageymslu stýrikerfisins (Keychain á macOS, Credential Manager á Windows eða Secret Service á Linux). Þar sem engin lyklageymsla er til geymir
--storage filehann í skrá sem aðeins notandinn þinn getur lesið. Skipanalínan neitar að nota skrána ef aðrir geta lesið hana. - Eyddu niðurhalaðri skránni þegar hún hefur verið flutt inn.
- Prófílar: hver vistaður lykill er prófíll. Bættu fleirum við með
--profile <heiti>, sjáðu þá meðmyntkaup auth listog veldu sjálfgefinn prófíl meðmyntkaup auth use <heiti>. myntkaup auth statussýnir lykilinn sem er í notkun, heimildir hans og gildistíma.myntkaup auth logoutafturkallar lykil sem skipanalínan bjó til með--web, og gleymir honum. Lykill sem þú fluttir inn gæti verið í notkun annars staðar, svo honum er aðeins gleymt; bættu við--revoketil að afturkalla hann líka.
Hvert beiðnir fara. Raunlykill (mk_live_…) er aðeins sendur á https://public-api.myntkaup.is, sama hvað annað er stillt. Prófunarlykill (mk_test_…) fer sjálfgefið á prófunarumhverfið, eða með --base-url á aðra https slóð eða á slóð á þinni eigin tölvu. auth login --web hefur engan lykil til að fara eftir, svo hún tengist raunumhverfinu; til að tengja prófunarlykil bætir þú við --base-url https://public-api.staging.myntkaup.is.
Skipanir
| Skipun | Hvað hún gerir |
|---|---|
myntkaup status | Hvort API-ið er uppi, hvað er opið, og hvort klukkan þín er rétt |
myntkaup whoami | Aðgangurinn og lykillinn sem er í notkun |
myntkaup balances, limits, bank-accounts | Innistæður, takmörk og bankareikningar sem þú hefur tekið út á |
myntkaup assets, prices [ASSET] | Það sem má eiga viðskipti með, og leiðbeinandi verð í þínum flokki |
myntkaup quote buy BTC --usdc 100 | Bindandi verðtilboð, án viðskipta |
myntkaup buy BTC --usdc 100, sell ETH --amount 0.5 | Viðskipti, innan verðmarka sem þú staðfestir |
myntkaup trades, transactions, withdrawals, giftcards | Saga, nýjast fyrst; get ID sýnir eina færslu |
myntkaup giftcards create BTC 0.0005, giftcards pdf ID -o F | Búa til gjafabréf, eða vista PDF skjal þess |
myntkaup withdraw bank 100 --account 0133-26-012345 | Úttekt af USDC á bankareikning á þinni eigin kennitölu |
myntkaup withdraw crypto BTC 0.01 --address … | Úttekt rafmyntar; þú staðfestir hana úr tölvupóstinum sem fylgir |
--usdc er upphæð í USDC; --amount er magn rafmyntarinnar. myntkaup <skipun> --help sýnir alla valkosti.
Viðskipti innan verðmarka
Verðtilboð er bindandi í aðeins nokkrar sekúndur, of stutt til að lesa það og svara. Þess vegna vinna buy og sell öðruvísi en skrefin tvö í API-inu:
Þú staðfestir verðmörk
Skipanalínan sýnir leiðbeinandi verð, um það bil hvað þú færð eða greiðir, og verðmörk: sjálfgefið 0,5% verra en leiðbeinandi verðið. Stilltu þau með
--max-price(kaup) eða--min-price(sala), eða breyttu bilinu með--max-slippage. Staðfestingin nefnir líka aðganginn og lykilinn, svo þú vitir hvers peningar þetta eru.Hún biður um verðtilboð og samþykkir strax
Skipanalínan biður um verðtilboð með POST
/v1/quotes. Hún samþykkir það með POST/v1/tradesaðeins ef verðið er innan markanna og upphæðin er sú sem þú baðst um. Ef verðtilboðið rennur út eða verðið hreyfist biður hún um nýtt, mest tvisvar, innan sömu marka.Hún fylgist með viðskiptunum
Fylgst er með viðskiptum í bið í allt að 30 sekúndur (
--wait). Ef svarið við beiðninni týnist les skipanalínan verðtilboðið til að sjá hvort það var samþykkt, í stað þess að reyna aftur.
--dry-run biður um verðtilboð og kannar það, án þess að samþykkja það.
Í skriftum og CI
export MYNTKAUP_API_KEY_ID=mk_live_…
export MYNTKAUP_API_PRIVATE_KEY=mk_sk_…
myntkaup balances --json | jq -r '.data[] | "\(.asset) \(.available)"'
myntkaup buy BTC --usdc 25 --yes --json | jq -r .id- Lykillinn úr umhverfinu: þegar báðar breyturnar eru stilltar notar skipanalínan þær og vistar ekkert. Notaðu sér lykil fyrir hverja vél, aðeins með þeim heimildum sem hún þarf.
- Staðfestingar: allt sem hreyfir peninga spyr fyrst. Þar sem skipanalínan getur ekki spurt stöðvast hún nema þú bætir við
--yes. Verðmörkin gilda líka með--yes. - Úttak:
--jsonprentar JSON svar API-sins á stdout, eins og í API lýsingunni. Spurningar, athugasemdir og villur fara á stderr. Kóðar gjafabréfa eru faldir nema þú bætir við--show-code. - Listar:
--allsækir allar síður (síðuskipting). - Endurtekningar:
--idempotency-keyá viðskiptum, gjafabréfum og úttektum gerir það öruggt að endurtaka sömu skipun (endurtekningar).
Stöðukóðar við lok keyrslu:
| Kóði | Merking |
|---|---|
| 0 | Í lagi |
| 1 | Óvænt villa |
| 2 | Röng notkun, eða hreyfing peninga án --yes þar sem ekki er hægt að spyrja |
| 3 | Ekki innskráð, eða lyklinum var hafnað (401) |
| 4 | Lykilinn vantar heimild, eða hann má ekki nota frá þessari IP tölu (403) |
| 5 | Fannst ekki (404) |
| 6 | Hafnað: innistæða, takmörk, verðtilboð utan verðmarka, eða „nei“ við staðfestingu |
| 7 | Of margar beiðnir (429) |
| 8 | API-ið er ekki tiltækt, og engu var breytt |
| 9 | Óvíst hvernig fór: kannaðu myntkaup trades eða withdrawals áður en þú reynir aftur |
| 130 | Hætt við |
Villukóðunum fylgja skilaboð API-sins og auðkenni beiðninnar, og ábending þar sem eitthvað er hægt að gera.
Stillingar
| Breyta | Merking |
|---|---|
MYNTKAUP_API_KEY_ID | Með MYNTKAUP_API_PRIVATE_KEY: lykillinn sem á að nota, í stað prófíls |
MYNTKAUP_API_PRIVATE_KEY | Einkalykillinn, mk_sk_… |
MYNTKAUP_API_BASE_URL | Slóð API-sins, eins og --base-url |
MYNTKAUP_PROFILE | Prófíllinn sem á að nota, eins og --profile |
MYNTKAUP_CONFIG_DIR | Hvar skipanalínan geymir stillingar sínar (myntkaup config path sýnir það) |
NO_COLOR | Engir litir |
Aðrir almennir valkostir: --no-input (spyrja aldrei), --verbose (skrá hverja beiðni á stderr, aldrei undirskrift hennar) og --timeout <sekúndur>.